# 10.02.2023 **Published by:** [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/) **Published on:** 2023-02-23 **URL:** https://paragraph.com/@tanjarasmussen/10-02-2023 ## Content Babylon – veit ekki hvort hún var framúrskarandi eða ferleg klisja, getur hún verið hvort tveggja í senn? Margot Robbie alveg jafn fáránlegur karlmannsdraumur og síðast en það er auðvitað ekki við hana að sakast og hún gerði það vel þrátt fyrir allt. Á hinum endanum eru senur á borð við fyrsta daginn í kvikmyndatökunum og flutningurinn yfir í hljóðmyndir sem toguðu mig fram á sætisbrúnina og myndina inn í bíósalinn. Hraði, nánd, sköpunargleði, brjálæði. Hvirfilbylur sem mig langaði að stíga inn í. Allir og amma þeirra á kókaíni en samt enginn Hollywood glamúr yfir því, þau voru bersýnilega í ruglinu. Sennilega var hún framúrskarandi þrátt fyrir fáklæddu, óheftu kókaín draumadísina. Hvenær fæ ég samt aðra á borð við Annihilation? ## Publication Information - [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/): Publication homepage - [All Posts](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/): More posts from this publication - [RSS Feed](https://api.paragraph.com/blogs/rss/@tanjarasmussen): Subscribe to updates