# 27.06.2022

By [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen) · 2023-03-17

---

Grýti helvítis

þunganum

þvert yfir

sandinn

er með

sjó og þang og smáskeljar

í lungunum

úr hárinu drýpur 

salt í sárin;

öll árin

sem koðnuðu

undan bleksvörtum

tilfinningum

og stungu

hárbeittum endum

í holdið

---

*Originally published on [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/27-06-2022)*
