# Grænlandshaf **Published by:** [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/) **Published on:** 2023-02-13 **URL:** https://paragraph.com/@tanjarasmussen/gr-nlandshaf ## Content Einu sinni sá ég þrjár sólir, segir hann með glýju í augunum, þrjár sólir sem sukku í hafið ég stóð í skuti og hún fyrir aftan fann fingur hennar nema við hnakkann hún hvíslaði til mín gegnum vímuna sem sólirnar ollu, gegnum eiturgræna kaðlana sem þær köstuðu yfir okkur: í nótt getum við klifrað alla leið til Guðs ## Publication Information - [Tanja Rasmussen](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/): Publication homepage - [All Posts](https://paragraph.com/@tanjarasmussen/): More posts from this publication - [RSS Feed](https://api.paragraph.com/blogs/rss/@tanjarasmussen): Subscribe to updates